Hvaða ávinning höfum við af opnanlegum húsum yfir sundlaugar og potta.______________
Þar sem sumur eru stutt lengja garðhúsin notkun svæðisins verulega. Hvort sem það er sumar eða vetur hefur veðurfarið engin áhrif á notkun pottsins eða sundlaugarinnar.
Hleypir sólargeislum í gegnum sig sem eykur hita sundlaugarvatnisns.
Lægri kostnaður við hitun vatnsins vegna minna hitataps.
Styttri tími og auðveldara umhald laugarinnar
Laufblöð og önnur óhreinindi safnast ekki fyrir í lauginni.
Útlit pottsins eða laugarinnar skaðast ekki yfir vetrartímann.
Öryggi gagnvart börnum - slysum fækkar.
Á fallegum vetrarkvöldum eða heitum sumardögum er húsið haft opið og þú nýtur augnabliksins.
Gagnlegir kostir____________________________
Opnanleg húsin eru meira en fallegur hlutur í garðinum sem heldur óhreinindum í skefjun, eykur öryggi barna og gæludýra í nálægð sundlaugarinnar eða pottsins. Fleiri kostir eru afar mikilvægir...
Hvað er betra en losna frá amstri dagsins og komast í góðan félagsskap með fjölskyldunni eða vinum án truflunar frá símum og sjónvarpi. Opnanleg húsin auka notkun pottsins og/eða laugarinnar verulega á öllum árstímum og fjölgar þannig samverustundum þar sem tekist er á um málefni líðandi stundar.
Svæði sem lokað hefur verið af með garðkúlu eða garðskála gefur kost á notkun allt árið um kring óháð veðri, sem leikvöllur krakka eða til afslöppunar í samveru með fjölskyldunni t.d. í heitum potti.